Ungfrú Ísland 2017
- Sep 12, 2017
- 3 min read
Fyrr í sumar var ég valin í hóp og fékk það tækifæri að taka þátt í Ungfrú ísland 2017. Ferlið sjálft byrjaði 1. Júní og var það mun skemmtilegra og lærdómsríkara en ég hafði nokkurn tímann dottið í hug. Ekkert var í rauninni eins og hélt það myndi vera.
Til þess að hafa allt á hreinu þá nei þú þarft ekki að fara í einkaþjálfun eða mæta í ræktina. Þú já, mátt borða það sem þú vilt og nei, enginn innan keppninnar mun rakka þig niður fyrir útlit, allavegana var það alls ekki þannig hjá okkur.
Ferlið og keppnin sjálf var allt öðruvísi en ég hélt hún myndi verða. Hreinskilnislega var ég hrædd um að fara til baka í gamlan vana og hætta að borða því það myndi vera svo mikil pressa á mér að vera grönn. Aftur á móti gerðist andstæðan. Ég kynntist einkaþjálfaranum, Olgu Helenu (sem vinnur hjá World Class) í gegnum Ungfrú Ísland. Olga var algjörlega það sem ég þurfti á að halda, hún kenndi mér að borða hollt og rétt. Olga er líka mesta fyrirmyndin þar sem hún er ótrúlega hvetjandi og góð. Að vera að æfa hjá henni hefur hjálpað mér gríðarlega og hef ég ekki verið jafn heilbrigð og ég er nú. Hún er líka svo flott að manni langar pínu bara að verða eins og hún.
Ungfrú ísland er mjög umdeild keppni innan íslenska samfélagsins. Ég sjálf var ekki viss með að taka þátt, sértaklega ekki eftir öll mín veikindi. En það er okkar val að taka þátt í þessari keppni. Alltaf eru einhverjar stelpur sem hætta því þetta prógram hentaði þeim ekki eða þá að þær fíluðu sig bara ekki, sem er mjög skiljanlegt þar sem þetta er ekki fyrir alla. Þú þarft mjög þykkt skinn til að vera í svona keppni. Því öllum finnst það allt í einu í lagi að gagnrýna okkur vegna þess að við erum jú í fegurðarsamkeppni, og erum víst að bjóða upp á þetta.
Öll neikvæðu og ljótu kommentin á netinu og skilaboðin sem maður fær eða fólkið sem segir bara beint við þig hvað þeim finnst þú ógeðsleg því þú ert í svona keppni. Ég var án gríns lamin og endaði með glóðurauga fyrir það eitt að taka þátt í keppninni af manneskju sem ég þekkti ekkert og manneskjan þekkti mig ekki heldur. Það er margt
sem maður þarf að þola við það eitt að taka þátt en þó kemur ekkert neikvætt frá stjórnendum keppninnar. Fólk verður að læra að virða aðra, því ég virði og skil að það eru ekki allir sem styðja svona keppnir.
Mikilvægt fyrir mig er að minnast á Birgittu Líf Björnsdóttur, framkvæmdarstjóra Ungfrú Íslands. Hún er ótrúlega flott, dugleg og frábær fyrirmynd. Ég reyndar skil ekki alveg hvernig ég, Birgitta líf og Olga Helena erum allar með jafn marga klukkutíma í deginum. Ég sver þær ná að gera allt og hljóta að aldrei sofa.
En það var æði að fá að vinna með Birgittu og bara öllum sem voru alltaf þarna, eins og til dæmis fyrrumkeppendur/sigurvegurum, Hafdísi eiganda keppninnar, stelpunum úr Reykjavík Make Up School, Rafni ljósmyndara og bara öllum. Aníta Ösp (Miss Top Model 2016) verður einnig að vera minnst á. Undir lokinn þegar allir voru stressaðir og allt var að fara að skella á var alltaf svo auðvelt að tala við hana. Hún og Elfa Rut (Miss Sport 2016) voru til í að hjálpa með allt og ekkert.
Ég vil minna á að allt þetta er bara mín reynsla og upplifun. Yfir allt þetta ferli fannst mér þetta hafa verið æðislegt, sérstaklega stelpurnar og allir sem komu að keppninni. Þetta endaði á að vera eitthvað allt annað en hægt væri að búast við, á góðan hátt.








































Comments